Fréttir

Reykjavíkurborg stækkar óverðtryggðan skuldabréfaflokk

28. apríl 2016

Borgarráð hefur samþykkt tilboð Arctica Finance, fyrir hönd fjárfesta, í óverðtryggða skuldabréfaflokkinn RVKN 35 1 að nafnverði ISK 1.200 milljónir á ávöxtunarkröfunni 6,42%.

Flokkurinn er opinn að stærð og fyrirhugað er að hann verði stækkaður á komandi árum og að viðskiptavakt verði tekin upp með flokkinn.

Heildarstærð flokksins er nú ISK 2.900 milljónir að nafnverði. Með þessari skuldabréfaútgáfu hefur Reykjavíkurborg gefið út skuldabréf fyrir samtals ISK 1.969 milljónir að markaðsverði á árinu 2016.