Fréttir

Hagar hf. selja óverðtryggð skuldabréf til fjárfesta að nafnverði 2,5 ma.kr.

16. október 2019

Hagar hf. hafa tekið tilboði fjárfesta í skuldabréf í nýjum óverðtryggðum flokki, HAGA 181021, en tilboðin bárust í framhaldi af lokuðu útboði félagsins þann 30. september sl. þar sem Hagar höfnuðu öllum tilboðum í óverðtryggðan flokk skuldabréfa. Óskað verður eftir að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland innan 6 mánaða.

Samtals bárust tilboð að nafnvirði 2,5 ma.kr. á genginu 1,0. Bréfin bera fasta 4,65% óverðtryggða vexti. Skuldabréfaflokkurinn er tryggður með veði í þróunareignum Haga. Hann er til 2 ára með einum gjalddaga höfuðstóls þann 18.10.2021. Vextir greiðast á 3 mánaða fresti. Gjalddagi og afhending bréfa er 18. október nk.

Að viðbættri verðtryggðri útgáfu félagsins þann 30. september sl. upp á 5,5 ma.kr. hafa Hagar þannig lokið fyrirhugaðri 8 ma.kr. útgáfu félagsins. Arctica Finance hafði umsjón með viðskiptunum fyrir hönd Haga.