Fréttir
Samruni Nordic Visitor og Iceland Travel samþykktur
Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna Nordic Visitor og Iceland Travel. Frá þessu er greint í tilkynningu og í fjölmiðlum. Eftirlitsaðilinn komst að þeirri niðurstöðu að með samrunanum yrði ekki til markaðsráðandi staða eða umtalsverð röskun á samkeppni og því ekki tilefni til íhlutunar.
Líkt og greint var frá í júní mun framtakssjóðurinn Umbreyting slhf., sem er í rekstri Alfa Framtaks, fjármagna kaupin hjá Nordic Visitor.
Arctica Finance var ráðgjafi Nordic Visitor við kaupin og Íslandsbanki ráðgjafi Icelandair.