Fréttir

Fyrirhugaður samruni Eldeyjar og Kynnisferða

7. maí 2020

Undirritað hefur verið samkomulag um sameiningu Kynnisferða og félaga sem eru í eignasafni Eldeyjar, en með sameiningunni verður til eitt stærsta félag landsins sem sinnir afþreyingartengdri ferðaþjónustu. Unnið er að frekari útfærslu samrunans, þ.m.t. áreiðanleikakönnun, ásamt tilkynningu til Samkeppniseftirlitsins.

Eldey TLH hf. hefur fjárfest í afþreyingartengdri ferðaþjónustu og er meðal annars hluthafi í Norðursiglingu, Arcanum Fjallaleiðsögumönnum, Dive.is og Logakór. Með sameiningunni verða hluthafar Eldeyjar hluthafar í Kynnisferðum.

Kynnisferðir eru eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins en sinnir til viðbótar annarri starfsemi t.d undirverktöku fyrir Strætó.

Markmið sameiningarinnar er að hagræða í rekstri ásamt því að styrkja sameiginlegt sölu- og markaðsstarf. Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance er ráðgjafi Kynnisferða og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbankaráðgjafi Eldeyjar. 

„Þessi sameining er mikilvæg fyrir alla samrunaaðila sem munu sameinaðir standa styrkari fótum í þeimáskorunum sem ferðaþjónustan stendur frammi fyrir sem og betur í stakk búnir til að grípa þau tækifæri sem kunna að skapast. Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú“ segir Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða.

„Með þessari sameiningu náum við að búa til stórt og öflugt ferðaþjónustufyrirtæki sem hefur veriðmarkmið Eldeyjar frá upphafi. Sameinað félag kemur til með að bjóða upp á fjölbreytta afþreyingu og þjónustu fyrir alla þá sem vilja njóta náttúru Íslands.“ segir Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri Eldeyjar.