Fréttir

Áfram mikill áhugi fjárfesta á útboði ÚR

25. nóvember 2020

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. hélt lokað útboð á víxlum í tveimur flokkum þriðjudaginn 24. nóvember sl. fyrir milligöngu Arctica Finance. Þetta er annað útboð félagsins á árinu, en það fyrra fór fram í ágúst sl. Útboðið heppnaðist mjög vel eins og hið fyrra og bárust tilboð að fjárhæð ISK 3.060 m frá 13 aðilum. ÚR ákvað að taka tilboðum fyrir ISK 2.360 m á 3,54% meðaltals vöxtum og voru þeir 0,28% lægri en í fyrra útboðinu.

ÚR er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem leggur áherslu á arðsemi og sjálfbæra nýtingu auðlinda. Með stefnumótandi fjárfestingum í aflaheimildum og traustum sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi og Grænlandi hefur félagið byggt upp eignir að verðmæti um EUR 430 m. Eiginfjárhlutfall félagsins var 55,7% á miðju ári 2020. Rekstur félagsins er í dag þríþættur. Í fyrsta lagi er ÚR hefðbundið íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki, sérhæft í rekstri frystitogara. Í öðru lagi er félagið stærsti hluthafinn í Brim hf., sem er eina skráða sjávarútvegsfélagið á Íslandi, og í þriðji lagi vinnur félagið að nýsköpun og vöruþróun í sjávarútvegi í gegnum dótturfélagið ÚR Innovation.

 

Runólfur V. Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR:

 

 Árangurinn í þessu öðru útboði staðfestir áhuga fagfjárfesta á íslenskum sjávarútvegi. Öflug íslensk sjávarútvegsfyrirtæki geta boðið fjárfestum frábæra fjárfestingakosti. ÚR hefur stefnt á það lengi að vinna með íslenskum fjárfestum við uppbyggingu á nútímalegum sjávarútvegi í fremstu röð í heiminum. Árangurinn í útboðinu sýnir að ÚR er á réttri leið.