22.4.2025

Hlutafjárútboð Fly Play er hafið

Almennt hlutafjárútboð Fly Play hf. hófst kl. 10.00, fimmtudaginn 24. júní 2021 og því lýkur föstudaginn 25. júní 2021 kl. 16.00.

Play_utbod

Boðnir verða til sölu samtals 221.906.800 hlutir að nafnverði í formi nýrra hlutabréfa í Fly Play hf. Fjárfestar geta valið á milli áskriftaleiðar A og áskriftarleiðar B, sem eru ólíkar er varðar stærð áskrifta og úthlutun.

  • Í áskriftarleið A verða boðnir til sölu 64.000.000 hlutir. Verð í áskriftarleið A er 18 kr./hlut. Lágmarksfjárhæð áskriftar er 100.000 kr. og hámarksáskrift er 20.000.000 kr.
  • Í áskriftarleið B verða boðnir til sölu 157.906.800 hlutir. Fjárfestar gera tilboð innan verðbilsins 18-20 kr./hlut. Lágmarksfjárhæð áskriftar er 20.000.000 kr.  

Upplýsingar og áskrift á vefnum

Áskriftum skal skilað í gegnum sérstakan áskriftarvef sem er aðgengilegur á vef Arctica Finance. Þar eru einnig ítarlegar upplýsingar um útboðið.

Þátttaka í útboðinu er heimil öllum þeim einstaklingum og lögaðilum sem hafa bæði íslenska kennitölu og eru fjárráða.

Áður en tekin er ákvörðun um fjárfestingu í hlutabréfum í Fly Play hf. skulu fjárfestar kynna sér alla skilmála útboðsins og upplýsingar um Fly Play hf., sem finna má í fjárfestakynningu Fly Play hf., sem dagsett er 14. júní 2021, auk annarra gagna, fyrirvara og upplýsinga sem birt eru í tengslum við útboðið og fyrirhugaða skráningu á Nasdaq First North Iceland.

Hlutafjárútboð Fly Play

❮ til baka