
Arctica Finance hafði umsjón með stækkun á skuldabréfaflokki útgefnum af Ölmu íbúðafélagi hf; AL101028.
Alma seldi 1.500 milljónir króna að nafnverði en bréfið er á fljótandi vöxtum, 1M REIBOR auk 1,30% vaxtaálags. Höfuðstóll bréfsins greiðist með einni afborgun á lokagjalddaga sem er 10. október 2028. Bréfin eru veðtryggð samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.
Skuldabréfin eru rafrænt útgefin og verða tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Sverrir Bergsteinsson, sverrirb@arctica.is
Magnús Símonarson, magnuss@arctica.is