
Arctica Finance hafði umsjón með sölu á nýjum skuldabréfaflokki útgefnum af Styrkás hf; STYRK 300125.
Styrkás hf. seldi 1.700 milljónir króna að nafnverði en bréfið er á fljótandi vöxtum, 1M REIBOR auk 1,50% vaxtaálags. Flokkurinn er til fjögurra ára og greiðist með einni afborgun á lokagjalddaga sem er 25. janúar 2030. Heimilt er að stækka útgáfuna í allt að 5 milljarða króna. Skuldabréfin eru rafrænt útgefin og félagið mun í kjölfar útgáfunnar sækja um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Sverrir Bergsteinsson, sverrirb@arctica.is
Magnús Símonarson, magnuss@arctica.is