23.11.2026

Arctica Finance umsjónaraðili skuldabréfaútgáfu Festi hf.

Arctica Finance hafði umsjón með sölu á skuldabréfum útgefnum af Festi hf. í nýjum flokki, FESTI 29 1, auk töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Seld voru skuldabréf að nafnvirði 1.420 m.kr. á pari. FESTI 29 1 er óveðtryggður skuldabréfaflokkur sem ber fljótandi vexti, 1 mánaða REIBOR að viðbættu 0,95% vaxtaálagi, og er lokagjalddagi 1. júní 2029. Skuldabréfin eru gefin út undir 16.000 m.kr. útgáfuramma félagsins.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður þriðjudaginn 1. desember 2026. Í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Ekki var um almennt útboð að ræða og var útboðið undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a-, c- og d-liðar 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) nr. 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Símonarson (magnuss@arctica.is).

‍

❮ til baka