Starfsfólk

JonThorSigurvinsson

Jón Þór Sigurvinsson

Forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar

Jón Þór er forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar og einn af stofnendum Arctica Finance. Jón Þór starfaði hjá Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans í tvö ár frá 2007 til 2008. Áður starfaði Jón Þór hjá fjárfestingafélaginu Straumborg, þar sem hann bar ábyrgð á fjárfestingum félagsins í orkugeiranum ásamt því að sjá um veltubók. Á árunum 2005 til 2007 sat Jón Þór í stjórn tveggja olíuleitarfyrirtækja. Frá 2004 til 2005 starfaði Jón Þór hjá CEA, Kjarnorkurannsóknarstofnun Frakklands.

Jón Þór er með MSc-gráðu í orkuverkfræði frá Université Joseph Fourier í Frakklandi, BSc-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, BSc-gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
AndriIngason

Andri Ingason

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Andri Ingason er sérfræðingur í Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance. Hann hóf störf hjá Arctica Finance árið 2018 og hefur síðan þá tekið þátt í mörgum af stærstu verkefnum fyrirtækjaráðgjafar, þar á meðal skráningum á markað, kaupum eða sölu fyrirtækja og fjármögnun þeirra. Áður en Andri gekk til liðs við Arctica Finance starfaði hann á Einstaklingssviði Landsbankans.

Andri lauk BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2018, BA-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2021 og hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
BirtaMariaBirnisdottir

Birta María Birnisdóttir

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Birta María Birnisdóttir er sérfræðingur í Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance. Hún hóf störf hjá Arctica Finance árið 2023 eftir að hafa lokið starfsnámi á sama sviði hjá Arctica Finance samhliða námi. Áður en Birta hóf störf hjá Arctica Finance starfaði hún hjá Sjóvá.

Birta María lauk BSc-gráðu í hagfræði með áherslu á fjármál frá Háskólanum í Reykjavík árið 2023 og hefur hún jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
DagurAndrason

Dagur Andrason

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Dagur Andrason er sérfræðingur í Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance. Dagur hóf störf hjá Arctica Finance árið 2023. Áður starfaði Dagur á útlánasviði Arion Banka samhliða námi og þar áður hjá hugmyndahúsinu Grósku þar sem hann sinnti hinum ýmsu verkefnum tengdum rekstri og fjármögnun.

Dagur lauk BSc-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2023 og hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
GretarBrynjolfsson

Grétar Brynjólfsson

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Grétar Brynjólfsson er sérfræðingur í Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance. Grétar hóf störf hjá Arctica Finance árið 2018, áður starfaði hann hjá fyrirtækjaráðgjöf GAMMA Capital Management og þar áður hjá fyrirtækjasviði PwC.

Grétar er með MSc-gráðu í fjármálum frá Háskólanum í Lundi, BSc-gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
GunnarJohannesson

Gunnar Jóhannesson

Verkefnastjóri í fyrirtækjaráðgjöf

Gunnar er verkefnisstjóri í fyrirtækjaráðgjöf og einn af stofnendum Arctica Finance. Gunnar hóf störf í Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans árið 2004, en áður starfaði hann sem rekstrarráðgjafi og meðeigandi hjá IMG og Deloitte. Gunnar hefur komið að fjölda verkefna í tengslum við kaup og sölu fyrirtækja.

Gunnar er með MSc-gráðu í rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet, BSc-gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
HildurSveinsbjornsdottir

Hildur Sveinbjörnsdóttir

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Hildur Sveinbjörnsdóttir er sérfræðingur í Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance. Hún hóf störf hjá Arctica Finance árið 2022 og hefur síðan þá tekið þátt í meðal annars fjármögnunum fyrirtækja ásamt kaupum og sölu fyrirtækja. Áður en Hildur gekk til liðs við Arctica Finance starfaði hún á ráðgjafasviði Ernst & Young þar sem hún sinnti meðal annars fjárhagslegum áreiðanleikakönnunum.

Hildur er með M.Fin gráðu frá Háskóla Íslands, BSc-gráðu í hagfræði frá sama skóla.
IndridiSigurdsson

Indriði Sigurðsson

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Indriði Sigurðsson er sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance. Indriði hóf störf hjá Arctica Finance árið 2015 eftir 16 ára atvinnumannaferill í knattspyrnu í Noregi og Belgíu.

Indriði er með BSc-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun frá Høgskolen i Sørøst –Norge og stundar einnig MBA nám samhliða vinnu með áherslu á fjármál við Heriot-Watt University, Edinburgh Business School. Þá hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
RutKristjansdottir

Rut Kristjánsdóttir

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Rut Kristjánsdóttir er sérfræðingur í Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance. Rut hóf störf hjá Arctica Finance árið 2021, en hún hefur starfað í fjármálageiranum frá árinu 2017. Rut starfaði í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion banka árin 2019-2021 þar sem hún kom m.a. að mótun ábyrgra fjárfestinga innan eignastýringar Arion banka. Þar áður starfaði Rut í fjármálaráðgjöf Deloitte árin 2017-2019 þar sem hún vann m.a. að áreiðanleika­könnun á mörgum af stærstu félögum á íslenskum markaði.

Rut er með BSc-gráðu í viðskiptafræði úr Háskólanum í Reykjavík og hefur hún jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
ThorbergurGudjonsson

Þórbergur Guðjónsson

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Þórbergur Guðjónsson hóf störf hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance í ágúst 2023. Áður hafði Þórbergur starfað hjá fyrirtækjaráðgjöf Arion banka og Kaupþings banka í 16 ár, eða frá árinu 2007. Þar kom Þórbergur að flestum skráningum á markað á vegum bankans auk annarra verkefna sem snúa að kaupum eða sölu fyrirtækja sem og fjármögnun þeirra. Á árunum 2003-2006 starfaði Þórbergur hjá Sparisjóði Mýrasýslu við ýmis verkefni er sneru s.s. að lánamálum og fjármögnun.

Þórbergur er með M.Sc. gráðu í fjármálum og fjárfestingum frá University of Edinburgh, B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Viðskipta­háskólanum á Bifröst. Jafnframt hefur Þórbergur lokið CFA-prófi sem og öðlast verðbréfaréttindi.
JonIngiArnason

Jón Ingi Árnason

Forstöðumaður markaðsviðskipta

Jón Ingi Árnason er forstöðumaður Markaðsviðskipta, en hann hóf störf hjá Arctica Finance í mars 2020. Jón Ingi hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2000, fyrst hjá Sameinaða lífeyrissjóðinum og síðar sem forstöðumaður og verðbréfamiðlari hjá Íslands­banka, Kviku og Landsbanka Íslands. Frá árunum 2010 til 2015 starfaði Jón Ingi sem sjóðs­stjóri hjá J Bond Partners og Landsbréfum.

Jón Ingi er með BSc-gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
RunarSteinnBenediktsson

Rúnar Steinn Benediktsson

Sérfræðingur í markaðsviðskiptum

Rúnar Steinn Benediktsson er sérfræðingur í Markaðsviðskiptum Arctica Finance. Áður en Rúnar Steinn gekk til liðs við Arctica Finance starfaði hann sem hlutabréfamiðlari hjá Íslandsbanka frá 2018-2023, sem hlutabréfamiðlari hjá Fossum mörkuðum 2017-2018, sem skuldabréfamiðlari hjá Íslandsbanka 2015-2017 og sem gjaldeyrismiðlari hjá sama banka árin 2012-2015. Þar áður starfaði Rúnar sem sérfræðingur hjá Vátryggingafélagi Íslands og sinnti jafnframt dæmakennslu við Háskóla Íslands.

Rúnar lauk meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019, B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2011 og hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
SverrirBergsteinsson

Sverrir Bergsteinsson

Sérfræðingur í markaðsviðskiptum

Sverrir Bergsteinsson hóf störf hjá Markaðsviðskiptum Arctica Finance í júlí 2023. Sverrir hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2006, fyrst hjá Fjárfestingafélaginu Straumborg til ársins 2009. Hann vann hjá Slitastjórn Landsbanka Íslands sem sérfræðingur á lánasviði til ársins 2014 og hjá sjóðastýringarfélaginu GAMMA Capital Management, sem sjóðsstjóri lánasjóða til ársins 2019. Við yfirtöku Kviku á GAMMA, árið 2019, fluttist hann til sjóðastýringarfélagsins Júpíter sem síðar varð Kvika Eignastýring og stýrði þar lánasjóðum ásamt því að sitja í lánanefnd ýmissa sjóða. Árið 2021 hóf Sverrir störf hjá Glym Eignastýringu og kom að stofnun nokkurra lánasjóða hjá félaginu.

Sverrir er með BSc-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
MagnusSimonarson

Magnús Símonarson

Sérfræðingur í markaðsviðskiptum

Magnús Símonarson hóf störf sem sérfræðingur í Markaðsviðskiptum Arctica Finance í upphafi ársins 2023. Magnús hefur starfað á fjármála­markaði samhliða námi undanfarin ár. Þar hefur hann starfað hjá Arion banka við eignastýringu fagfjárfesta og rekstur lífeyrissjóða. Þar að auki hefur Magnús sinnt dæmatímakennslu í áföngunum Rekstrarhagfræði 2 og Líkindafræði og forritun við Háskóla Íslands.

Magnús er með BSc-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands en nám hans þar var að hluta tekið við Stanford háskóla í Bandaríkjunum og hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
GretarBrynjolfsson

Ægir Birgisson

Sérfræðingur í markaðsviðskiptum

Ægir Birgisson hóf störf hjá Markaðsviðskiptum Arctica Finance í ágúst 2018. Ægir hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 1994, fyrst hjá Verðbréfamarkaði Íslandsbanka (VÍB) við fjárfestingaráðgjöf til einstaklinga og síðar sem forstöðumaður og verðbréfamiðlari hjá Íslandsbanka, Fjárfestingarbanka atvinnulífsins (FBA), Straumi fjárfestingarbanka og VBS fjárfestingarbanka. Frá árunum 2011 til 2018 starfaði Ægir sjálfstætt við fjárfestingar og ráðgjöf.

Ægir er með BSc-gráðu í fjármálum frá University of S - Alabama, MBA frá Háskólanum í Reykjavík og hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
StefanThorBjarnson

Stefán Þór Bjarnason

Framkvæmdastjóri

Stefán er framkvæmdastjóri og einn af stofnendum Arctica Finance. Stefán var forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans á Íslandi og vann hjá Landsbankanum á árunum 1999 fram til október 2008. Á þessum tíma leiddi Stefán eða tók þátt í flestum af helstu fyrirtækja­ráðgjafar­verkefnum bankans.

Stefán lauk kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1999, öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2001, og hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi bæði á Íslandi og í Bretlandi.
OlafurThorFinsen

Ólafur Þór Finsen

Lögfræðingur / Regluvörður

Ólafur er lögfræðingur og einn af stofnendum Arctica Finance. Ólafur hefur starfað í fjármálageiranum frá 1999 þegar hann hóf störf í Búnaðarbankanum, en hann starfaði hjá Landsbanka Íslands frá júní 2003. Á þessum tíma hefur Ólafur komið að mörgum af helstu íslensku verkefnum tengdum fyrirtækjaráðgjöf.

Ólafur lauk kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
BjarniThordurBjarnason

Bjarni Þórður Bjarnason

Aðstoðarframkvæmdastjóri

Bjarni Þórður Bjarnason, aðstoðar­framkvæmda­stjóri, er einn af stofnendum Arctica Finance. Frá júní 2003 til október 2008 var Bjarni forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans. Fyrir þann tíma var Bjarni aðstoðarforstöðumaður Fyrirtækja­ráðgjafar Búnaðarbankans og þar áður í samskonar stöðu hjá Gildingu fjárfestingarsjóði. Bjarni var fyrir þetta einnig sérfræðingur hjá Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings. Á síðustu árum hefur Bjarni veitt mörgum íslenskum og erlendum fjárfestum ráðgjöf í kaupum og sölum á fyrirtækjum og rekstri auk þess að safna hlutafé.

Bjarni er vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Southern Methodist University í Bandaríkjunum. Þá hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
BerglindGretarsdottir

Berglind Gretarsdóttir

Móttaka og skrifstofuhald

Berglind hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 1989, lengst af hjá Íslandsbanka sem deildarstjóri í rekstrardeild og rekstrarstjóri í reikningshaldi. Berglind starfaði hjá Saga Fjárfestingarbanka 2009 – 2011.

Berglind Gretarsdóttir er með B.S. gráðu í viðskiptafræði frá California State University Long Beach. Ennfremur hefur Berglind stundað nám í Iðnskólanum í Hafnarfirði á hönnunar- og listnámsbraut.