
Arctica Finance hafði umsjón með sölu á skuldabréfum útgefnum af Styrkás hf; STYRK 300125, ásamt því að annast töku þeirra til viðskipta, innheimtu og uppgjör í tengslum við útgáfuna.
Styrkás hf. seldi 1.220 milljónir króna að nafnverði en bréfið er á fljótandi vöxtum, 1M REIBOR auk 1,50% vaxtaálags. Flokkurinn greiðist með einni afborgun á lokagjalddaga sem er 25. janúar 2030. Heildarstærð flokksins eftir útgáfu verður 2.920.000.000 kr.
Skuldabréfin verða rafrænt útgefin og félagið mun í kjölfar útgáfunnar sækja um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Eingöngu var hægt að greiða með bréfum í skuldabréfaflokknum STYRK 271015 á pari sem jafngildir 1,50% álagi á 1M REIBOR í útgáfunni. Heildarstærð STYRK 271015 að uppgjöri loknu verður 980.000.000 kr.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður miðvikudagur, 11. nóvember 2026.
Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a-,b-, c- og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sem innleidd var með lögum nr. 14/2020.
Styrkás hf. er rekstrarfélag, stofnað árið 2022. Dótturfélög Styrkás eru Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni, sem saman mynda samstæðu félagsins. Styrkás er leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Styrkás hefur hafið undirbúning að skráningu hlutabréfa félagsins á aðallista Nasdaq Iceland, með það að markmiði að félagið verði skráð á öðrum ársfjórðungi 2027.
Nánari upplýsingar veitir:
Magnús Símonarson, magnuss@arctica.is