
Þann 12. maí tilkynnti Eyrir um 15 milljóna evra fjárfestingu í The Kingfish Company B.V., hollensku fiskeldisfyrirtæki sem sérhæfir sig í landeldi á gullsporði (e. Yellowtail) með lokuðu endurhringrásarkerfi (RAS) í Zeeland í Hollandi. Kingfish selur afurðir sínar á hágæðamörkuðum, meðal annars til fínni veitingahúsa víða um Evrópu, og hefur skipað sér í fremstu röð á sviði sjálfbærs landeldis á verðmætum fisktegundum. Félagið var stofnað árið 2015 og er núverandi framleiðslugeta þess um 3.600 tonn á ári. KingFish er skráð á Euronext Growth markaðinum í Osló.
Fjárfesting Eyris er gerð í gegnum nýstofnað félag, Eyrir Blue Farms, sem leggur áherslu á fjárfestingar í landeldisfyrirtækjum á síðari stigum sprotaþróunar eða á fyrstu vaxtarskeiðum þeirra. Eyrir Blue Farms mun fjárfesta 15 milljónum evra í lokuðu hlutafjárútboði að heildarfjárhæð 21 milljón evra. Samhliða útboðinu verður fjármagnsskipan Kingfish einfölduð, meðal annars með því að eigendur breytanlegs skuldabréfs að fjárhæð 49 milljóna evra breyta útistandandi höfuðstól í hlutafé, auk þess sem aðallánveitandi félagsins mun framlengja núverandi fjármögnun. Að viðskiptunum loknum verður Eyrir stærsti hluthafi Kingfish og mun jafnframt taka sæti í stjórn félagsins.
"Kingfish hefur byggt upp sterkan og vel aðgreindan rekstrargrundvöll, studdan af öflugu og reynslumiklu teymi með skýra áherslu á gæði, nýsköpun og sjálfbærni. Með markvissum fjárfestingum í háþróaðri tækni og landbundnu RAS‑kerfi sem nýtir ferskan sjó og endurnýjanlega orku hefur félagið skapað traustan grunn til að framleiða fisk í hæsta gæðaflokki með ábyrgum og skalanlegum hætti. Hjá Eyrir leggjum við ekki aðeins til fjármagn, heldur einnig langtímaskuldbindingu, stefnumótandi stuðning og virkt samstarf. Við hlökkum til að vinna náið með stjórnendum og öðrum hluthöfum að áframhaldandi vexti félagsins og að skapa sjálfbær langtímaverðmæti fyrir alla hagaðila."
Arctica Finance og AX Legal Services voru ráðgjafar Eyris vegna lokaða hlutafjárútboðsins og í vinnu við endurskipulagningu á fjárhag Kingfish. ABG Sundal Collier var fjárhagslegur ráðgjafi Kingfish.
Nánari upplýsingar um félagið og viðskiptin má finna hér: