Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu á nýjum skuldabréfaflokki útgefnum af Kaldalóni hf; KALD 201228.
Kaldalón hf. seldi 1.500 milljónir króna að nafnverði á 8,35% ávöxtunarkröfu.
Flokkurinn er óverðtryggður á föstum 8,30% ársvöxtum með einni afborgun höfuðstóls á lokagjalddaga en vextir greiðast tvisvar á ári. Skuldabréfaflokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi og verða bréfin tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.
Hér má nálgast tilkynningu Kaldalóns sem birt var í kauphöll.
Sverrir Bergsteinsson, sverrirb@arctica.is
Magnús Símonarson, magnuss@arctica.is