Tillögur ÍL-sjóðs um breytingu á skilmálum HFF bréfa voru samþykktar af skuldabréfafundum þann 10. apríl síðastliðinn og skilyrði til uppgjörs samþykkt af Alþingi 3. júní.
Tillögurnar voru mótaðar af viðræðunefnd fjármálaráðherra og ráðgjöfum 18 lífeyrissjóða, sem voru Arctica Finance og Logos.
Virði bréfanna var metið í tillögunum á um 651 ma.kr. og mun ÍL-sjóður og íslenska ríkið afhenda kröfuhöfum við uppgjör ríkisskuldabréf að andvirði 540 ma.kr., önnur verðbréf í eigu ÍL-sjóðs að andvirði 38 ma.kr., gjaldeyri að andvirði 55 ma.kr. og reiðufé að andvirði 18 ma.kr.
Arctica Finance hefur unnið að verkefninu frá því í október 2022, þegar fjármála- og efnahagsráðuneytið gaf út skýrslu um stöðu ÍL-sjóðs. Síðastliðið ár hefur Arctica Finance verið hluti af viðræðunefnd sem mótaði tillögur sem kynntar voru í mars 2025.