23.5.2025

Arctica Finance ráðgjafi EIK við kaup á öllu hlutafé í Festingu hf.

Í dag hefur Eik fasteignafélag hf. („Eik“ eða „félagið“) undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Festingu hf. Seljendur eru Blue Ocean B.V. og SMT Partners B.V. Fasteignir Festingar á Íslandi eru um 43 þúsund fermetrar að stærð í 12 fasteignum og hýsa starfsemi Samskipa hf. á Íslandi. Leigusamningar um eignirnar verða til 20 ára frá og með afhendingu á hlutafé Festingar.

Heildarvirði Festingar í kaupunum (e. Enterprise Value) er 15.070 m.kr. sem er 230 m.kr. lækkun frá fyrri tilkynningu. Ráðgert er að kaupin verði fjármögnuð að stórum hluta með lánsfé. Eik áætlar að áhrif á EBITDA félagsins verði á bilinu 1.130 – 1.140 m.kr. á ársgrundvelli m.v. vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í júní 2025. Kaupin eru gerð með skilyrðum, þ.m.t. samþykki Samkeppniseftirlitsins og annarra hagaðila.  

Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar fasteignafélags:

„Fasteignir Festingar tilheyra mikilvægum innviðum í samfélaginu og því er ánægjulegt að Eik og seljendur hafi náð saman með undirritun kaupsamnings. Samskip er og verður nauðsynlegur hluti af íslensku samfélagi og hlökkum við til samstarfsins um ókomna framtíð. Eik fasteignafélag vill fjárfesta með atvinnulífinu og við komumst varla nær kjarna þess en með þessum viðskiptum.„

Ráðgjafar Eikar fasteignafélags í viðskiptunum eru fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance hf. og Venture Legal ehf. Ráðgjafar seljenda er fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka og LOGOS.

❮ til baka