Fréttir

Arctica Finance ráðgjafi Fredensborg við sölu á Heimstaden á Íslandi

8. mars 2024

Sjóður að fullu í eigu íslenskra lífeyrissjóða hefur gengið frá kaupum á Heimstaden á Íslandi sem er með um 1.600 íbúðir í langtímaleigu hér á landi. Seljandinn er norska fjárfestingafélagið Fredensborg AS sem er móðurfélag Heimstaden Bostad AB, sem er eitt stærsta íbúðafélag Evrópu.

Upphaflega var tilkynnt um fyrirhuguð kaup sjóðsins, sem er í stýringu Stefnis, í október sl. en samkomulagið var með fyrirvörum, meðal annars um fjármögnun sem hefur nú verið aflétt. Málið er nú til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu.

60 íbúðir teknar úr sölu og auglýstar til leigu 

Með þessum áfanga er uppsögn á leigusamningum um 250 heimila dregin til baka en Heimstaden hafði tilkynnt áform um að selja eignir sínar á almennum markaði og draga sig úr leigustarfsemi hér á landi. Þá verða auk þess yfir 60 íbúðir teknar úr söluferli og auglýstar lausar til leigu á næstu vikum, sem ætla má að muni hafa jákvæð áhrif á húsnæðisframboð á leigumarkaði en umræddar íbúðir eru allar á höfuðborgarsvæðinu.

Langtímaáform nýrra eigenda Heimstaden er að skapa þjónustudrifið leigufélag sem verður nýtt uppbyggingarafl á íbúðamarkaði og þannig styðja við markmið stjórnvalda um aukið aðgengi að húsnæði. Félagið hyggst fjármagna uppbyggingu nýrra íbúða til útleigu með það að markmiði að tvöfalda stærð félagsins á næstu árum.

Undanfarið hefur mikil óvissa ríkt á meðal starfsfólks og leigjenda um framtíð félagsins en með kaupunum hefur framtíð þess verið tryggð og eignasölu félagsins hefur nú verið hætt. Egill Lúðvíksson mun halda áfram sem forstjóri félagsins og engar breytingar verða gagnvart starfsfólki Heimstaden sem býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á leigumarkaði og er félaginu mjög verðmætt.

Áform fjármálaráðuneytisins um fyrirhugaða lagabreytingu á fjárfestingum lífeyrissjóða á íbúðamarkaði hafði afgerandi áhrif á að þessum áfanga hefur nú verið náð. 

Ráðgjafi Fredensborg AS í viðskiptunum eru Arctica Finance og LEX lögmannsstofa, en ráðgjafar kaupenda eru BBA, Logos, Frumherji, Deloitte og KPMG Law.