Fréttir

Eyrir Invest hf. styrkir stöðu sína með samningi við JNE Partners og The Baupost Group

2. nóvember 2022

Sjóðirnir leggja Eyri til 175 milljóna evra langtímafjármögnun til frekari vaxtar

Eyrir Invest og fjárfestingarsjóðirnir JNE Partners LLP og The Baupost Group hafa undirritað samkomulag um að sjóðirnir leggi Eyri til 175 milljóna evra lán til fjögurra ára. Með samkomulaginu öðlast sjóðirnir rétt til að eignast hluti í Marel frá Eyri í lok lánstímans.

Samningurinn styrkir efnahag Eyris og auðveldar umtalsverðar endurgreiðslur bankaskulda og  styður við uppbyggingu og vöxt næstu ára í samræmi við áætlanir félagsins.

„Það er mikill fengur í því að fá eins öfluga samstarfsaðila og JNE Partners og The Baupost Group eru til liðs við Eyri Invest. Þeir búa yfir mikilli reynslu og verðmætri þekkingu á alþjóðamörkuðum sem mun nýtast Eyri á komandi árum.  Staða Marel er mjög sterk, þrátt fyrir þróun heimshagkerfisins og með innkomu JNE Partners og The Baupost Group er Eyrir nú enn betur í stakk búið til að styðja frekar við Marel sem kjölfestufjárfestir. Samkvæmt þeirri framtíðarsýn sem stjórnendur Marel hafa dregið upp opinberlega má búast við verulegum vexti og virðisaukningu Marel á næstu árum  sem og í öðrum eignum í eignasafni Eyris“ segir Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris.

„JNE Partners hefur verið hluthafi í Marel frá árinu 2017 og við höfum mikla trú á félaginu sem er leiðandi á heimsvísu á sviði tæknilausna í matvælavinnslu. Við virðum mikils hvernig Eyrir Invest sem kjölfestufjárfestir og Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, hafa leitt vöxt Marel síðustu tvo áratugi og þann árangur sem náðst hefur undir þeirra forystu. Við erum afar ánægð með að styrkja nú samstarf okkar enn frekar við Eyri Invest og við hlökkum til samstarfs um áframhaldandi vöxt og frekari þróun Marel sem og annarra eigna í eignasafni Eyris Invest.“ segir Jonathan Esfandi,  framkvæmdastjóri hjá JNE Partners.

Ráðgjafar Eyris í tengslum við fjármögnunina voru Arctica Finance og LOGOS sem nutu aðstoðar Arendt. Ráðgjafar JNE Partners LLP og The Baupost Group voru Reed Smith LLP sem nutu aðstoðar Elvinger Hoss Prussen.

Nánar um JNE Partners

JNE Partners LLP er fjárfestingarfélag sem staðsett er í London. Félagið hefur síðustu 16 ár verið langtíma fjárfestir  í bæði skráðum og óskráðum félögum víðsvegar um Evrópu. Eignir í stýringu félagsins eru yfir 1 milljarði bandaríkjadala.

Nánari upplýsingar um JNE Partners LLP má finna á heimasíðu sjóðsins www.jnepartners.com

Nánar um The Baupost Group

The Baupost Group er sjóðastýringarfélag sem stofnað var 1982 og er með höfuðstöðvar í Boston í Bandaríkjunum. Í fjárfestingum sínum horfir félagið einkum til langtímafjárfestingar í virðisfélögum. The Baupost Group stýrir fjárfestingum fyrir hönd fjölskyldna, sjóða og styrktarsjóða, sem og starfsmanna sem samanlagt eru stærsti viðskiptavinur félagsins.

Nánari upplýsingar um Baupost má finna á heimasíðu sjóðsins www.baupost.com

Nánar um Eyri Invest hf.

Eyrir Invest er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur áherslu á fjárfestingar í félögum sem eru eða eiga möguleika á að verða leiðandi á alþjóðavísu. Félagið hefur um 18 ára skeið verið meðal kjölfestuhluthafa í Marel hf. og á Eyrir um 25% útgefinna hluta í félaginu. Eyrir Invest hefur einnig fjárfest umtalsvert í sprotafyrirtækjum, bæði með beinum hætti og í gegnum sérhæfða fjárfestingasjóði.

Nánari upplýsingar um Eyri Invest má finna á heimasíðu félagsins www.eyrir.is