27.1.2026

Arctica Finance umsjónaraðili skuldabréfaútgáfu Ölmu íbúðafélags hf.

Arctica Finance hafði umsjón með stækkun á skuldabréfaflokki útgefnum af Ölmu íbúðafélagi hf; AL101028.

Alma seldi 1.500 milljónir króna að nafnverði en bréfið er á fljótandi vöxtum, 1M REIBOR auk 1,30% vaxtaálags. Höfuðstóll bréfsins greiðist með einni afborgun á lokagjalddaga sem er 10. október 2028. Bréfin eru veðtryggð samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.

Skuldabréfin eru rafrænt útgefin og verða tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Sverrir Bergsteinsson, sverrirb@arctica.is

Magnús Símonarson, magnuss@arctica.is

❮ til baka