A/F Rekstraraðili

Starfsmenn

Friðrik Magnússon
Framkvæmdastjóri
Friðrik Magnússon er framkvæmdastjóri A/F Rekstraraðila ehf., dótturfélags Arctica Finance hf., sem er skráð hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða, sbr. lög nr. 45/2020. Friðrik var forstöðumaður Eignastýringar Arctica Finance frá 2010 til 2020. Friðrik hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 1994 sem framkvæmdastjóri Verðbréfasjóða Íslandsbanka, deildarstjóri og sjóðstjóri í Eignastýringu Íslandsbanka, sérfræðingur í Einkabankaþjónustu Íslandsbanka og Glitnis banka og sem sérfræðingur í eignastýringu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Friðrik er viðskiptafræðingur af fjármálasviði Háskóla Íslands (1994), með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík (2010) og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Vanesa Hoti er sérfræðingur hjá A/F Rekstraraðila ehf. Vanesa hóf störf árið 2021 í Eignastýringu Arctica Finance eftir að hafa útskrifast með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði með áherslu á fjármál, frá Háskóla Íslands. Vanesa hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.