Sérhæfðir sjóðir

Sjóðurinn A/F HEIM slhf. var stofnaður árið 2021 og gilda lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða nr. 45/2020 um starfsemi hans, sem og lög nr. 2/1995, um hlutafélög. Viti fjárfestingafélag ehf. er ábyrgðaraðili sjóðsins.

Sjóðurinn fjárfestir í skráðum skuldabréfum sem upphaflega voru útgefin af Heimavöllum hf. gegn greiðslu með skráðum skuldabréfum útgefnum af sjóðnum, sem eru með veði í fasteignatryggðum seljendalánum til Heimstaden ehf.

Sjóðurinn er fyrir fagfjárfesta og er lokaður, þ.e. ekki opinn fyrir fjárfestum. 

Nánari upplýsingar um sjóðinn veitir sjóðstjóri sjóðsins, Vanesa Hoti, tölvupóstur [email protected].

Stjórnarhættir og starfsreglur

Fjárhagsuppgjör