Besta framkvæmd
Arctica Finance hefur sett stefnu um framkvæmd viðskiptafyrirmæla (e. best execution). Stefnunni er ætlað að tryggja að viðskiptavinir Arctica Finance hljóti bestu mögulegu niðurstöðu við framkvæmd viðskiptafyrirmæla þeirra og tilgreina þá markaði sem Arctica Finance framkvæmir viðskiptafyrirmæli viðskiptavina sinna á, enda óski viðskiptavinir ekki eftir sérstakri framkvæmd viðskiptafyrirmæla. Í stefnunni eru jafnframt settar fram þær forsendur sem starfsmenn Arctica Finance byggja á við framkvæmd viðskiptafyrirmæla, m.a. verð, kostnað, hraða og aðra þætti sem máli skipta.