Stjórn

María Rúnarsdóttir, stjórnarformaður

  • María Rúnarsdóttir, stjórnarformaður, starfar í dag sem fjármálastjóri fasteignafélagsins SMI ehf. og einnig sem stjórnandi hjá Lagernum ehf., sem meðal annars rekur Rúmfatalagerinn, Jysk, Pier og ILVA verslanirnar. Áður starfaði María meðal annars sem ráðgjafi hjá KPMG Ráðgjöf og sem fjármálastjóri Svar tækni ehf. María situr einnig í stjórn eftirfarandi félaga: Holding company BIK ehf., ILVA ehf., Lagerinn ehf., Lagerinn Iceland ehf., Lagerinn Linen Investments ehf., NIF ehf., SMI Verktakar ehf., Stekkjarbrekkur ehf., Svar tækni ehf. og The Pier ehf.  María er með MBA gráðu frá MIT (Massachusetts Institution of Technology) í Bandaríkjunum og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Frosti Sigurjónsson, stjórnarmaður

  • Frosti Sigurjónsson, stjórnarmaður, hefur unnið að uppbyggingu sprotafyrirtækja, bæði sem fjárfestir og ráðgjafi. Frosti er stjórnarformaður Dohop og DataMarket, en var áður stjórnarformaður CCP. Frosti var forstjóri Nýherja frá 1996 til 2001, en þar á undan var hann í tvö ár fjármálastjóri Marel. Að auki hefur Frosti verið stjórnarmaður í Verzlunarráði, Háskólaráði HR og Vísindagörðum Háskóla Íslands. Frosti er með próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá London Business School.

Þórir Kjartansson, stjórnarmaður

  • Þórir Kjartansson, stjórnarmaður, er byggingaverkfræðingur frá Háskóla Íslands 1993 og með MBA-gráður frá IESE. Þórir hefur verið sjálfstætt starfandi fjárfestir frá 2000 í gegnum Íslenska Fjárfestingu ehf. sem hann á og rekur í samstarfi við annan mann. Þórir hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum og má þar nefna að Þórir var í stjórn Landspítalans – Háskólasjúkrahúss til nokkurra ára og sat í nefnd um byggingu á nýjum Landsspítala. Þá hefur Þórir setið í stjórn ýmissa fyrirtækja og situr í stjórn Íslenskrar Fjárfestingar ehf. og ýmsum dótturfélögum þess.

Erlendur Svavarsson, varamaður

  • Erlendur Svavarsson, varastjórnarmaður, hefur starfað í fluggeiranum frá 1992, þegar hann hóf störf hjá Flugfélaginu Air Atlanta. Þar starfaði hann til 2001 þegar hann tók við starfi stöðvarstjóra í Stokkhólmi hjá MD flugfélaginu, en tók síðan við markaðs- og sölustjórastarfi hjá félaginu. Árið 2003 varð Erlendur verkefnastjóri hjá Loftleidir Icelandic ehf. og varð síðar yfirmaður sölu og markaðsmála hjá því félagi. Árið 2008 starfaði Erlendur hjá Icelandair Group sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar. Síðan 2010 hefur Erlendur veirð framkvæmdastjóri hjá Loftleiðum Icelandic. Erlendur hefur setið stjórnum ýmissa dótturfyrirtækja samstæðunnar. Erlendur útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1992 og hefur lokið áföngum úr hagfræðiskori Háskóla Íslands.

Gísli Þór Arnarson, varamaður

  • Gísli Þór Arnarson, varastjórnarmaður, er með C.S gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá University of Louisville í Bandaríkjunum. Gísli Þór hefur frá 2006 starfað sem forstöðumaður innflutningsdeildar Samskipa. Áður starfaði Gísli Þór í þrjú ár sem viðskiptastjóri í innflutningsdeild Eimskips og önnur þrjú ár þar á undan starfaði Gísli Þór við verkfræði og viðskiptaráðgjöf hjá The Corradino Group.

Margrét Vilborg Bjarnadóttir, varamaður

  • Margrét Vilborg Bjarnadóttir, varastjórnarmaður, er gesta lektor við Robert H. Smith School of Business, University of Maryland, í Bandaríkjunum og kennir ákvarðanafræði og líkön, þ.m.t. svokölluð data-mining, í MBA prógrammi skólans. Rannsóknir beinast að áhættugreiningu (e. risk analysis) og áhættuspá (e. risk prediction), bæði í fjármálageiranum sem og heilbrigðiskerfinu. Þá hefur Margrét Vilborg starfað sem sjálfstæður ráðgjafi frá 2006, m.a. við greiningu á þætti krosseignarhalds í falli íslenska bankageirans fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis.  Margrét Vilborg útskrifaðist með BsC gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands  2001 og Ph.D. doktorsgráðu í aðgerðagreiningu frá Massachusetts Institute of Technology 2008.

Arctica Finance hf. - Höfðatorgi – 14. hæð - 105 Reykjavík - Sími 513 3300 - Fax 513 3309 - Kt. 540509-1820 - Hafa samband - Lagalegur fyrirvari