Tryggvi Sveinsson

Tryggvi Sveinsson er sérfræðingur í Markaðsviðskiptum. Áður en Tryggvi hóf störf hjá Arctica vann hann hjá H.F. Verðbréfum hf. í 4 ár frá október 2006. Á þeim tíma sinnti hann flestum störfum innan markaðsviðskipta, s.s. miðlun hlutabréfa og skuldabréfa, bæði innlendra og erlendra. Einnig sá Tryggvi um útgáfu og sölu skuldabréfa og skráningar í Kauphöll fyrir sveitarfélög og fyrirtæki ásamt öðrum verkefnum. Tryggvi hefur lokið M.Sc. í fjármálahagfræði og B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur að auki lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.


Arctica Finance hf. - Höfðatorgi – 14. hæð - 105 Reykjavík - Sími 513 3300 - Fax 513 3309 - Kt. 540509-1820 - Hafa samband - Lagalegur fyrirvari