Baldur Stefánsson
Baldur er verkefnisstjóri og sérfræðingur og einn af stofnendum Arctica Finance. Fyrir stofnun Arctica Finance var Baldur sérfræðingur í Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans í 6 ár. Hann hefur aðallega stýrt verkefnum fyrir íslenska umbjóðendur tengdum alþjóðlegum fyrirtækjakaupum og sölum, fjármögnunarverkefnum og verkefnum tengdum fjárhagslegri endurskipulagningu félaga. Þar áður fékkst Baldur við ýmis verkefni, s.s að stýra kosningabaráttu Alþýðuflokksins, stofnun og stjórnun alþjóðlegs umboðs- og framleiðslufyrirtækis í afþreyingariðnaði, stofnun alþjóðlegu tónlistarhátíðarinnar „Iceland Airwaves“ í Reykjavík og störf sem frumkvöðull fyrir norræna fjárfestingarsjóði með áherslu á fjárfestingar í óskráðum fyrirtækjum, þar sem hann vann við verkefni í Bandaríkjunum, Kanada, Svíþjóð og á Íslandi. Baldur nam stjórnmála- og hagfræði við Háskóla Íslands og hefur MBA gráðu frá IESE í Barcelona.
