Fréttir

Lýsing gefur út nýjan skuldabréfaflokk

26. október 2016

Lýsing hf. hefur gefið út 2 milljarða króna að nafnvirði í nýjum skuldabréfaflokki LYSING 16 1. Skuldabréfin eru jafngreiðslubréf til 7 ára og greiða mánaðarlega vexti sem taka mið af 1 mánaða REIBOR vöxtum að viðbættu 1,10% vaxtaálagi. Bréfin eru tryggð með veði í dreifðu safni útlána og fjármögnunarsamninga. Óskað verður eftir að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Markaðsviðskipti Arctica Finance höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.

Með þessari skuldabréfaútgáfu hefur Lýsing gefið út skuldabréf og víxla á innlendum verðbréfamarkaði fyrir tæplega 8 ma.kr. frá því í nóvember 2015.

Fjárhagsstaða Lýsingar er góð, hagnaður félagsins á fyrstu 6 mánuðum ársins 2016 nam um 285 milljónum króna. Eigið fé félagsins var 10,9 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall reiknað skv. lögum um fjármálafyrirtæki (CAD) nam 45,2% þann 30. júní 2016.