Eignastýring
Eignastýring Arctica Finance býður uppá óháða og persónulega fjármálaþjónustu fyrir efnameiri einstaklinga og fagfjárfesta sem byggir á trúnaði og heilindum. Eignastýring er drifin af reynslumiklu starfsfólki sem hefur þróað sérþekkingu sína hjá erlendum og innlendum fjármálastofnunum.
Í samvinnu við viðskiptavini okkar greinum við fjárhagslega stöðu og þarfir þeirra og gerum tillögu að eignauppbyggingu og finnum raunhæfar lausnir. Við leggjum áherslu á gott langtímasamband sem byggir á trausti og trúnaði. Viðskiptavinir velja á milli þess að vera í fjárfestingaráðgjöf eða í virkri eignastýringu.
Fjárfestingaráðgjöf
Fjárfestingaráðgjöf er sérsniðin þjónusta fyrir einstaklinga sem vilja ráðgjöf um fjárfestingar en taka ákvörðun um viðskipti sjálfir. Fjárfestingaráðgjöfin felur í sér aðgengi að sérfræðiþekkingu starfsmanna Arctica Finance og tengslum við markaðina. Viðskiptavinir hafa daglegan aðgang að viðskiptastjóra sem veitir ráðgjöf og kynnir mögulega fjárfestingakosti sem henta settu fjárfestingamarkmiði.
Virk eignastýring
Virk eignastýring er þjónusta fyrir þá sem vilja fela sérfræðingum stýringu á eignasafni sínu samkvæmt fyrirfram ákveðinni fjárfestingastefnu. Virk eignastýring er því kjörin fyrir þá sem hafa ekki tíma til að fylgjast með mörkuðum eða telja sig ekki hafa þekkingu eða reynslu til að greina og meta fjárfestingamöguleika. Val viðskiptavina á fjárfestingastefnu ræðst af vilja og getu til að taka áhættu þar sem tillit er tekið til aldurs, fjárfestingatíma og fleiri atriða.
Persónuleg þjónusta og óháð ráðgjöf
Eigin viðskiptastjóri
Arctica Finance leggur mikið upp úr persónulegri þjónustu. Hver viðskiptavinur hefur sinn eigin viðskiptastjóra sem býr yfir margra ára reynslu af fjármálamörkuðum. Viðskiptastjórinn hefur umsjón með eignasafninu og sér um öll samskipti og fundi. Viðskiptavinir hafa einnig beinan og greiðan aðgang að honum með síma og tölvupósti og geta fengið ráðgjöf þegar þeim hentar.
Óháð og hlutlaus eignastýring og ráðgjöf
Arctica Finance rekur ekki verðbréfasjóði og stundar ekki útlánastarfssemi. Sérfræðingar Arctica Finance eru því óháðir í greiningu, mati og vali á fjárfestingum sem skilar sér í faglegri þjónustu viðskiptavinum til hagsbóta.
Trúnaður
Strangar reglur gilda um fjármálafyrirtæki og starfsmenn þeirra og ríkar skyldur eru lagðar á þá. Starfsmenn Arctica Finance eru bundnir trúnaði um fjárhagsstöðu viðskiptavina.
Helstu kostir og ávinningur fyrir viðskiptavini
- Hlutleysi og sjálfstæði í greiningu og vali á fjárfestingum
- Trúnaður og heilindi
- Persónuleg þjónusta með eigin viðskiptastjóra
- Reglulegir fundir og samskipti
- Yfir 12 ára reynsla starfsmanna að meðaltali af fjármálamörkuðum