Arctica Finance annast skuldabréfaútgáfu Garðabæjar

Garðabær hefur í samstarfi við Arctica Finance gefið út skuldabréfaflokk vegna lántöku að fjárhæð kr. 500 milljónir. Um er að ræða verðtryggt lán til 40 ára með 3,8% föstum ársvöxtum. Andvirði lánsins verður varið til framkvæmda við nýtt hjúkrunarheimili sem rís á Sjálandi í Garðabæ.

Gunnar Einarsson bæjarstjóri segir lánskjörin sem Garðabær fái með útgáfu þessa skuldabréfaflokks séu með því besta sem þekkist á markaði í dag. “Kjörin endurspegla góða fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og lýsa trausti fjárfesta á stjórnun þess,” segir Gunnar.

Fyrirhugað er að taka nýja hjúkrunarheimilið á Sjálandi í notkun í ársbyrjun 2013. Ríkið greiðir 85% af stofnkostnaði þess en Garðabær þau 15% sem upp á vantar.


Arctica Finance hf. - Höfðatorgi – 14. hæð - 105 Reykjavík - Sími 513 3300 - Fax 513 3309 - Kt. 540509-1820 - Hafa samband - Lagalegur fyrirvari