Arctica veitir ráðgjöf við kaup á B.M. Vallá
Undirritaður hefur verið samningur um kaup BMV Holding ehf. á B.M. Vallá ehf. frá Eignabjargi ehf., dótturfélagi Arion banka. Hluthafar BMV Holding eru Norcem á Íslandi ehf., Björgun ehf., Jarðefnaiðnaður ehf., Suðurhraun ehf., Hlér ehf., Harðbakur ehf. og Suðurverk hf.
Arctica Finance og Logos Lögmannsþjónusta voru ráðgjafar kaupenda í söluferlinu.
Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.